Blue Car Rental
Heimilisfang:

Blue Car Rental ehf.
Blikavellir 3
235 Keflavíkurflugvöllur
Ísland

Hafðu samband:
blue@bluecarrental.is
  • Um Okkur
  • Blue Cares
  • Fréttir
  • Bluecarrental.is
  • Bílasala
  • Langtímaleiga
  • Ríkiskaup

2025 Blue ehf. Allur réttur áskilinn.
  • Persónuverndarstefna
Um OkkurStefnurBlue CaresFréttir

Birgir ræddi áætlunagerð í ferðaþjónustu á ráðstefnu SAF

03.júní 2025

Fréttir

Birgir Ólafsson, fjármálastjóri Blue Car Rental, var einn af þremur ræðumönnum á ráðstefnu Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) um áætlunargerð í ferðaþjónustu sem haldin var 26. maí síðastliðinn. 

Ráðstefnan sem bar yfirskriftina „Betri yfirsýn – bættur rekstur“, var haldin í samstarfi við KPMG og Advise og var streymt beint frá höfuðstöðvum SAF í Borgartúni. 

Markmið ræðumanna á ráðstefnunni var að svara spurningunni: Hvernig getur áætlunagerð og bætt innsýn í rekstartölur aukið árangur í starfi?

 

Lifandi áætlun í breytilegu umhverfi

Í erindi sínu „Lifandi áætlun í breytilegu umhverfi“ deildi Birgir hagnýtum lausnum í áætlunargerð og lagði áherslu á mikilvægi þess að hafa skýra yfirsýn yfir tekjur, kostnað og markaðsbreytur:

„Lifandi áætlun kallar á virka þátttöku og sveigjanleika; verum á undan, ekkert óvænt,“ sagði Birgir og undirstrikaði þannig gildi þess að geta brugðist rétt við breyttum aðstæðum.

 

Það er alltaf ánægjulegt og mikill heiður þegar stjórnendur og starfsmenn Blue Car Rental fá tækifæri til að miðla þekkingu sinni og reynslu.

Birgir stóð sig með stakri prýði á ráðstefnunni og uppskar verðskuldað lófatak og lof fyrir sitt framlag. Bæði frá viðstöddum í salnum og áhorfendum heima.

Vel gert, Biggi!

Birgir Ólafsson, fjármálastjóri Blue car rental, flytur erindi á ráðstefnu SAF.
Birgir Ólafsson á ráðstefnu SAF.
Deila