Fyrirtækið
  • Um okkur
  • Mannauður
  • Framkvæmdastjórn
  • Stefnur
  • Fréttir
  • Skammtímaleiga
  • Ríkiskaup
  • Sækja um starf
  • Hafa samband
Langtímaleiga
  • Tryggingar
  • Leiguskilmálar
  • Panta tíma
  • Spurt og svarað
  • Kílómetrastaða
Samfélagslegábyrgð
  • Blue Cares
  • Góðgerðarfest Blue
  • Sækja um styrk
  • Styrkveitingar
Bílasala
Upplýsingar
  • Blue Car Rental ehf.
  • Blikavöllur 3
  • 235 Keflavík Airport, Iceland
  • blue@bluecarrental.is
  • +354 773 7070
Bílasala
  • Blue Car Rental ehf.
  • Blikavöllur 3
  • 235 Keflavík Airport, Iceland
  • blue@bluecarrental.is
  • +354 773 7070
Blue
Blue

Samfélagsleg ábyrgð

Blue Cares

Blue Cares
Góðgerðarfest Blue
Sækja um styrk
Styrkveitingar

Blue Cares

Okkur er annt um samfélagið okkar

Hjá Blue Car Rental trúum við því að ábyrgð fyrirtækja nái lengra en til daglegs reksturs. Við viljum vera virkur þátttakandi í samfélaginu, styðja við fólkið í kringum okkur og leggja okkar af mörkum þar sem við getum haft jákvæð áhrif.

Samfélagsleg ábyrgð hefur verið hluti af vegferð Blue Car Rental frá upphafi og árið 2019 fékk hún formlegan vettvang undir nafninu Blue Cares.

Í dag er Blue Cares sameiginleg umgjörð utan um samfélagsverkefni, styrkveitingar og samstarf Blue Car Rental við félagasamtök, íþróttafélög, einstaklinga og önnur verkefni sem láta gott af sér leiða.

Við leggjum sérstaka áherslu á nærsamfélagið á Suðurnesjum, þar sem rætur okkar liggja, en viljum jafnframt styðja við mikilvæg málefni sem skapa tækifæri og bæta líf fólks.

 

Hvernig látum við gott af okkur leiða?

 

Góðgerðarfest Blue

Góðgerðarfest er eitt stærsta samfélagsverkefni Blue Car Rental. Þar leiðum við saman fyrirtæki, einstaklinga og samfélagið til að safna fjármagni fyrir mikilvæg góðgerðarmál og samfélagsverkefni.

Frá upphafi hafa safnast um 150 milljónir króna í gegnum Góðgerðarfest. Árið 2026 söfnuðust 39 milljónir króna og hlutu 33 verkefni styrki.

Blue Car Rental stendur straum af öllum framkvæmdakostnaði hátíðarinnar svo hver einasta króna sem safnast renni óskipt til styrkþega.

 

Íþróttir og nærsamfélag

Íþrótta- og félagsstarf gegnir mikilvægu hlutverki í öflugu samfélagi. Við styðjum við íþróttafélög og samfélagsstarf, sérstaklega á Suðurnesjum, og viljum með því stuðla að virkri þátttöku, samveru og tækifærum fyrir börn, ungmenni og fullorðna.

 

Styrkir til einstaklinga og verkefna

Í gegnum Blue Cares styðjum við einnig við einstaklinga og afmörkuð verkefni sem samræmast áherslum okkar og geta haft jákvæð áhrif á líf fólks.

 

Við erum stolt af því að geta stutt við samfélagið okkar og þakklát öllum þeim sem vinna daglega að því að gera það að betri stað.

Image