Þorsteinn, framkvæmdastjóri Blue Car Rental, var nýverið fenginn til Færeyja af Brandr, leiðandi vörumerkjastofu á Íslandi og í Færeyjum, sem sérhæfir sig í greiningu, stefnumótun og þróun sterkra vörumerkja. Þar stóð Brandr fyrir árlegum viðurkenningum fyrir bestu færeysku vörumerkin, líkt og þeir gera á Íslandi, þar sem Blue Car Rental var tilnefnt á þessu ári.
Samskonar viðburðir eru haldnir í Færeyjum og var Þorsteinn fenginn til að miðla reynslu Blue af uppbyggingu vörumerkis á krefjandi og samkeppnisdrifnum markaði.
Í fyrirlestri sínum fór Þorsteinn yfir hvernig Blue Car Rental hefur byggt upp sterkt og sjálfstætt vörumerki án aðkomu milliliða. Sú stefna hefur gert fyrirtækinu kleift að eiga beint samband við viðskiptavini, hafa fulla stjórn á upplifun þeirra og byggja upp traust til lengri tíma. Þessi nálgun hefur verið lykilþáttur í aðgreiningu Blue á markaði.
Þorsteinn fjallaði einnig um vegferð fyrirtækisins í gegnum endurmörkun, þar sem lögð var áhersla á að byggja á þeirri menningu sem þegar var til staðar og skapa félaginu meiri aðgreiningu á markaði þar sem mikil samkeppni ríkir.
„Við vorum ekki að byrja frá grunni, við vorum að draga fram það sem Blue stóð þegar fyrir og gera það sýnilegra,“ segir Þorsteinn.
Endurmörkunin fólst í því að draga fram styrkleika Blue Car Rental og setja þá í skýrari og samræmdari farveg.
Að vera boðin þátttaka á viðburði sem þessum er skýr vísbending um að uppbygging Blue Car Rental vekur athygli út fyrir landsteinana og tilnefning fyrirtækisins til verðlauna hjá Brandr undirstrikar enn frekar þá vegferð sem Blue er á sem eitt af áhugaverðari og framsæknari vörumerkjum landsins í dag.