Fulltrúar Blue Car Rental, þeir Magnús Sverrir og Birgir, héldu nýverið fyrirlestur fyrir nemendur í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, í tengslum við fjármálaáfanga á BS-stigi.
Í fyrirlestrinum fóru þeir yfir rekstur fyrirtækisins, þróun þess undanfarin ár og hvaða hugsun liggur að baki góðum rekstrarárangri.
Að vera boðin þátttaka í kennslu við Háskóla Íslands er viðurkenning á þeirri vegferð sem Blue hefur farið. Hún endurspeglar aukinn áhuga á því hvernig fyrirtækið hefur byggt upp sterkan og áreiðanlegan rekstur þar sem einfaldleiki, gagnsæi og nýsköpun eru í forgrunni.
„Það er gaman þegar háskólasamfélagið sækir í raunveruleg dæmi úr atvinnulífinu. Fyrir okkur er mikilvægt að deila því sem við höfum lært bæði því sem hefur gengið vel og því sem hefur kennt okkur mest.“ segir Birgir, framkvæmdarstjóri fjármála hjá Blue Car Rental.
Samstarf við háskólasamfélagið fellur vel að þeirri sýn Blue að vera framsækið, gagnadrifið og leiðandi fyrirtæki sem leggur sitt af mörkum til þróunar atvinnulífsins