Blue Car Rental hefur hlotið viðurkenninguna Vinnustaður í fremstu röð 2025 frá Moodup, Viðurkenningin er veitt þeim sem sýna í verki að þeir hugsa vel um starfsfólk sitt og tryggja því framúrskarandi starfsumhverfi.
Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem uppfylla þrjú lykilskilyrði:
Þessi árangur endurspeglar skýra stefnu Blue Car Rental um að skapa jákvætt og styðjandi starfsumhverfi þar sem rödd starfsfólks skiptir máli. Lögð er áhersla á opna samskiptamenningu, virka hlustun og stöðugar umbætur í daglegu starfi.
“Við erum afar stolt af þessari viðurkenningu. Hún staðfestir að sú vinna sem við leggjum í vellíðan og upplifun starfsfólks skilar raunverulegum árangri.” Segir Jónína Magnúsdóttir mannauðsstjóri.
Blue Car Rental mun áfram leggja áherslu á að efla starfsánægju og þróa vinnustaðinn í takt við þarfir starfsfólks og framtíðarsýn fyrirtækisins.
