Góðgerðarfest Blue Car Rental fór fram laugardaginn 10. október og skilaði glæsilegum árangri. Alls söfnuðust 39 milljónir króna sem renna til fjölbreyttra góðgerðarmála og samfélagsverkefna. Frá upphafi hefur Góðgerðarfest safnað um 150 milljónum króna til góðra málefna.
Góðgerðarfest hefur á undanförnum árum orðið mikilvægur hluti af samfélagslegri ábyrgð Blue Car Rental. Markmið verkefnisins er að styðja við einstaklinga, félagasamtök og verkefni sem skapa jákvæð og raunveruleg áhrif á líf fólks, með sérstakri áherslu á nærsamfélagið á Suðurnesjum.
Í ár fór hátíðin fram á Mánagrund hjá Hestamannafélaginu Mána í Reykjanesbæ, þar sem fjöldi fólks kom saman til að skemmta sér og leggja góðum málefnum lið.
Alls bárust 116 umsóknir um styrki úr Góðgerðarfest í ár. Umsóknirnar endurspegla vel hversu fjölbreytt og mikilvægt starf er unnið í samfélaginu, oft af fólki sem leggur mikinn tíma og kraft í að bæta líf annarra.
Við úthlutun styrkja var meðal annars lögð áhersla á verkefni sem styðja börn og fullorðna með auknar stuðningsþarfir, bæta aðstöðu til náms og þroska, efla félagslega þátttöku og styðja við fjölskyldur og einstaklinga sem standa frammi fyrir áskorunum.
Styrkirnir renna meðal annars til sérhæfðra námsúrræða í skólum, íþrótta- og félagsstarfs, geðheilbrigðisverkefna, björgunarstarfs og félagasamtaka sem sinna mikilvægum stuðningi í samfélaginu.
Formleg styrkjaafhending fór fram miðvikudaginn 14. október hjá Blue Car Rental á Keflavíkurflugvelli, þar sem styrkþegar komu saman og tóku við styrkjum sínum.
Á bak við hverja styrkveitingu er verkefni, hugmynd eða þörf sem skiptir raunverulegu máli.
Á undanförnum árum hafa styrkir frá Góðgerðarfest meðal annars nýst til að bæta aðstöðu nemenda í sérhæfðum námsúrræðum, útbúa skynörvunarherbergi, kaupa búnað fyrir nám og þjálfun og skapa fleiri tækifæri til félagslegrar þátttöku.
Hjá Hæfingarstöð Reykjanesbæjar hafa styrkir meðal annars gert starfsfólki kleift að bæta aðstöðuna, kaupa fjölbreyttan búnað og standa fyrir viðburðum og upplifunum sem auðga daglegt líf notenda.
Í Eikinni, sérhæfðu námsúrræði Holtaskóla, hefur stuðningurinn meðal annars nýst til kaupa á skynörvunarbúnaði og stuðningsvörum sem stuðla að fjölbreyttara og betra námsumhverfi.
Góðgerðarfest hefur einnig stutt við uppbyggingu Hlýjunnar, úrræðis þar sem ungmenni í Reykjanesbæ geta leitað sér stuðnings án kostnaðar og með einföldum hætti.
Þessi dæmi sýna hvernig styrkirnir geta breyst í áþreifanleg tækifæri, betri aðstöðu og aukin lífsgæði.
Góðgerðarfest byggir á þeirri trú að fyrirtæki, einstaklingar og samfélagið geti í sameiningu haft jákvæð áhrif.
Blue Car Rental stendur straum af öllum kostnaði við framkvæmd hátíðarinnar svo að allt söfnunarféð renni óskert til góðra málefna.
Árangurinn væri þó ekki mögulegur án þeirra fjölmörgu einstaklinga og fyrirtækja sem leggja verkefninu lið, listamanna sem koma fram, starfsfólks Blue Car Rental og allra þeirra sem kaupa miða og taka þátt.
„Góðgerðarfest snýst fyrst og fremst um fólkið og málefnin sem við erum að styðja. Það er ótrúlega dýrmætt að sjá hvað hægt er að gera þegar fyrirtæki og einstaklingar taka höndum saman. Við erum stolt af því að geta lagt okkar af mörkum, en fyrst og fremst þakklát öllum þeim sem gera þetta mögulegt.“
Magnús Sverrir Þorsteinsson, eigandi Blue Car Rental.