Fyrirtækið
  • Um okkur
  • Mannauður
  • Framkvæmdastjórn
  • Stefnur
  • Fréttir
  • Skammtímaleiga
  • Ríkiskaup
  • Sækja um starf
  • Hafa samband
Langtímaleiga
  • Tryggingar
  • Leiguskilmálar
  • Panta tíma
  • Spurt og svarað
  • Kílómetrastaða
Samfélagslegábyrgð
  • Blue Cares
  • Góðgerðarfest Blue
  • Sækja um styrk
  • Styrkveitingar
Bílasala
Upplýsingar
  • Blue Car Rental ehf.
  • Blikavöllur 3
  • 235 Keflavík Airport, Iceland
  • blue@bluecarrental.is
  • +354 773 7070
Bílasala
  • Blue Car Rental ehf.
  • Blikavöllur 3
  • 235 Keflavík Airport, Iceland
  • blue@bluecarrental.is
  • +354 773 7070
Blue
Blue

Blue Car Rental framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo 2025

31.október 2025

Fréttir

Blue Car Rental er Framúrskarandi fyrirtæki árið 2025. Viðurkenningin var veitt af Creditinfo Ísland við hátíðlega athöfn í Hörpu þann 30. október sl.

Aðeins þau fyrirtæki sem skara fram úr í rekstri og uppfylla ströng skilyrði Creditinfo hljóta þessa viðurkenningu. Það var því sérstaklega ánægjulegt fyrir stjórnendur Blue Car Rental að taka á móti viðurkenningunni fyrir hönd fyrirtækisins.

Fyrir hönd Blue Car Rental tóku við viðurkenningunni; 

Magnús Sverrir Þorsteinsson, forstjóri, Þorsteinn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri, Sævar Sævarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri og Birgir Ólafsson, fjármálastjóri.

Stolt og hvatning til framtíðar

Blue Car Rental er í flokki stórra fyrirtækja og ein af fáum bílaleigum landsins sem hafa hlotið þessa nafnbót í þeim flokki. 

Þetta er í annað sinn á tveimur árum sem fyrirtækið hlýtur viðurkenninguna, sem endurspeglar öflugan og traustan rekstur þess.

Viðurkenningin er jafnframt mikilvæg hvatning til framtíðar. Blue Car Rental hyggst áfram leggja áherslu á að þróa þjónustu sína, fjárfesta í nýjum lausnum og styrkja stöðu sína sem leiðandi afl í ferðaþjónustu á Íslandi.

Hér má lesa um fyrri viðurkenningu Blue Car Rental frá árinu 2024.

Viðurkenning fyrir árangur og traustan rekstur

Í 16 ár hefur Creditinfo unnið greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitt Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn.


Vottunin er mikilvægur þáttur í að efla traust og sýnir fram á stöðugleika, ábyrgð og fagmennsku þeirra fyrirtækja sem standast ströng skilyrði Creditinfo. Aðeins lítill hluti íslenskra fyrirtækja fær þessa viðurkenningu ár hvert.

Lesa má nánar um viðurkenninguna á vefsíðu Creditinfo.

Birgir, Magnús, Þorsteinn og Sævar taka á móti viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki frá Creditinfo Ísland.

Deila